Aðalfundur FFRang 2024

Boðað er til aðalfundar Ferðafélags Rangæinga í Menningarsalnum á Hellu, þriðjudaginn 25. júní n.k. kl 18:00. Hefðbundin aðalfundarstörf. Ólöf Kristín Sívertsen, forseti Ferðafélags Íslands kemur í heimsókn og segir frá starfinu. Nýprentaðri Árbók FÍ "Sunnan Vatnajökuls" verður dreift á fundinum. Félagsmenn hvattir til að mæta - kaffi og kleinur og góður félagsskapur.