Árbókin 2024

Nú þegar ferðafélagið okkar fer að vakna á ný úr miðsumardvalanum þá er rétt að benda á að Árbókin 2024 er tilbúin til afhendingar til félagsmanna. Að þessu sinni fjallar árbókin um svæðið sunnan Vatnajökuls - frá Núpsstað til Suðursveitar. Til að spara fokdýran sendingarkostnað þá höfum við svipaðan hátt á og síðustu árin og félagsmenn geta nálgast bækur í afgreiðslunni í Sundlauginni á Hellu eða á Hárstofunni hennar Önnu Gunnu í Miðjunni á Hellu. Einnig eru stjórnarmenn með eintök til afhendingar t.d. Ágúst Öldubakka 5 Hvolsvelli (s. 8986316) og Emilía á Hróarslæk (s. 8983930).