Áfram gakk

Úr ferð í Landmannalaugar sumarið 2022
Úr ferð í Landmannalaugar sumarið 2022

Fyrsta starfsár félagsins okkar FFRang hefur gengið mjög vel og þátttaka í ferðum okkar hefur verið frábær hreint út sagt. Hvort sem um er að ræða lengri ferðir eða miðvikudagsgöngur þá hefur þátttaka verið góð og síðan höfum við reyndar verið einstaklega heppin með veður sem ekki spillir fyrir auðvitað. Við höfum á þessu fyrsta starfsári verið að fóta okkur og finna út hvernig best er að standa að starfi félagsins en kjarninn og aðalmálið er auðvitað að skipuleggja og hvetja til gönguferða og útvistar í okkar frábæra héraði. Eftir viðtökum að dæma þá ferð þetta vel af stað og við höldum því ótrauð áfram og skipuleggjum nýjar ferðir á nýju starfsári.