- 20 stk.
- 31.08.2023
Glæsilegur hópur sem tók þátt í FFRang-göngu á Vatnsdalsfjall í blíðviðri þann 2. ágúst 2023. Alls 40 manns á aldrinum 2-81 árs. Vatnsdalsvatnið og víðátta fjallsins kemur á óvart en gangan var þægileg og útsýni til allra átta gott af Bæjarhaus. Helgafell er hæsti toppurinn (361m) og sér vel til beggja sveitarfélaganna Rangárþings ytra og Rangárþings eystra en sveitarfélagamörkin liggja á þessu svæði um Fiskánna sem rennur norðan og vestan Vatnsdalsfjalls sem reyndar kallast Árgilsstaðafjall líka - ef staðið er vestan megin. Kærar þakkir til Vatnsdalsbænda fyrir leiðsögnina. Myndir tók Gísli Gíslason.